Brot í rúðu flugstjórnarklefa í farþegavél Icelandair sem kom upp í flugi frá Orlando til Reykjavíkur í gær var aðeins í ysta lagi rúðunnar, sem er eitt lag af mörgum. Þetta segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við mbl.is.
Tom Podolec, ljósmyndari og flugáhugamaður, birti mynd af skemmdunum á rúðunni á Twitter-síðu sinni í dag, en líkt og sjá má á myndinni hér fyrir neðan virðist rúðan vera mölbrotin.
Guðjón segir að atvik sem þessi séu fátíð. „Gluggar í stjórnklefum farþegaþota eru hannaðir sem hluti af margþáttuðu öryggiskerfi vélanna. Rúðurnar eru gerðar úr nokkrum lögum níðsterkra efna til þess að tryggja að þó að sprunga komi í eitt laganna þá haldi hinn,“ segir Guðjón.
Þá segir hann jafnframt að gluggar vélanna séu kannaðir fyrir hvert flug. „Ástand glugganna og hitakerfisins í þeim er hluti af öryggisskoðun fyrir hvert flug auk þess sem skipt er um þennan búnað eftir atvikum í reglulegum stærri öryggisskoðunum,“segir Guðjón. Atvik af þessu tagi komi fyrir endrum og sinnum en hönnun rúðanna eigi að hindra að þær brotni í gegn þó svo að brot komi í eitt lag af mörgum. „Þetta er ekki venjuleg rúða eins og í stofuglugganum heima hjá þér,“ segir Guðjón.
Guðjón segir að á þessu stigi sé ekki hægt að segja nákvæmlega til um hvað það var sem orsakaði brotið í rúðunni en það verði skoðað á næstu dögum.
Vélin var líkt og áður sagði á leið frá Orlando í Flórída til Keflavíkur aðfaranótt laugardags með 160 farþega um borð. Þegar flugmenn vélarinnar urðu varir við sprungur í vinstri framrúðu í flugstjórnarklefanum var vélinni lent á næsta flugvelli, Saguenay Bacotville-flugvellinum í Quebec í Kanada.