Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að staða Sigríðar Andersen dómsmálaráðherra hafi ekkert breyst við dóm héraðsdóms í gær.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Rúv.
Ríkið var dæmt til að greiða Jóni Höskuldssyni héraðsdómara 5,1 milljón í skaða- og miskabætur vegna ákvörðunar dómsmálaráðherra að líta fram hjá honum þegar skipað var í embætti dómara við Landsrétt.
Þá var í öðru máli viðurkennd bótaskylda ríkisins í sambærilegu máli Eiríks Jónssonar lagaprófessors sem einnig hafði verið meðal umsækjenda um starf dómara við Landsrétt.
„Það var algjörlega fyrirsérð að það myndu falla bætur í skaut þeim sem þarna áttu í hlut og hafði verið gert ráð fyrir því áður,“ sagði Bjarni í samtali við Rúv.
Kæra vegna hæfis fjögurra dómara við Landsrétt fær flýtimeðferð hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður, sem sá um að kæra málið til Mannréttindadómstólsins, sagði í samtali við Rúv að hann hefði frest til 23. nóvember til að gera athugasemdir við málatilbúnað ríkisins og koma á framfæri bótakröfu fyrir hönd umbjóðanda síns.
Þegar þær upplýsingar lægju fyrir fengi ríkið tækifæri til að gera athugasemdir áður en málið færi í dóm.