Hlutfall kvenna í framkvæmdastjórnum 100 stærstu fyrirtækja landsins er 26% og einungis 10% forstjóra og 19% stjórnarformanna þessara fyrirtækja eru konur. Konur eru þó orðnar 40% stjórnarmanna í 100 stærstu fyrirtækjunum, samkvæmt nýjum könnunum Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA.
Á milli fjörutíu og fimmtíu fyrirtæki skrifuðu undir viljayfirlýsingu um að vinna að jafnrétti á ráðstefnunni „Rétt‘ upp hönd“, sem fram fór á Hótel Nordica í dag. Þar var fjallað um hreyfiaflsverkefnið Jafnvægisvogina, sem FKA hefur sett af stað ásamt velferðarráðuneytinu, Sjóvá, Deloitte, Morgunblaðinu og Pipar\TBWA.
Markmið Jafnvægisvogarinnar er að árið 2027 verði kynjahlutfall í framkvæmdastjórnum fyrirtækja og opinberra aðila á Íslandi orðið 40/60, en tilgangurinn með verkefninu er að virkja íslenskt viðskiptalíf og opinbera aðila til þess að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir.
Í fréttatilkynningu frá Félagi kvenna í atvinnulífinu segir að konur séu einungis 32,6% stjórnarmanna í fyrirtækjum með fleiri en 50 starfsmenn. Það nær ekki því 40% viðmiði sem sett var í lögum um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja sem tóku gildi árið 2013 og hefur hlutfall kvenna í stjórnum lækkað lítillega frá árinu 2014, en staðan hvað þetta varðar er þó jafnari en fyrir lagasetninguna, þegar um 20% stjórnarmanna í fyrirtækjum með fleiri en 50 starfsmenn voru konur.
Í tilkynningu FKA segir að auknum hlut kvenna í stjórnum frá lagasetningu hafi ekki fylgt sambærileg aukning á hlutfalli kvenna sem gegni stjórnarformennsku. Frá lagasetningu hefur hlutfall kvenna í hópi stjórnarformanna félaga með fleiri en 50 starfsmenn meira að segja farið lækkandi, úr 18% á árinu 2013 niður í 15% á árinu 2017 og er nánast komið á sama stað og fyrir lagasetningu.
„Staðan er örlítið betri meðal stjórnarformanna félaga á hlutabréfamarkaði, þar sem hlutfall kvenna sem stjórnarformenn er 26% en konur eru aðeins 19% stjórnarformanna 100 stærstu fyrirtækja landsins, mælt eftir veltu,” segir í tilkynningu FKA.
Rakel Sveinsdóttir formaður FKA segir að allar rannsóknir styðji það að þegar blönduð teymi karla og kvenna, nái fyrirtæki hreinlega betri árangri.
„Það er líka svo sorgleg sóun á mannauði að mennta allar þessar kraftmiklu ungu konur, en hleypa þeim ekki til áhrifa í fyrirtækjunum. Þetta slagorð okkar á ráðstefnunni, Rétt´upp hönd, er bæði hvatning til kvenna að gera sig sýnilegri innan fyrirtækja og einnig hvatning til karlstjórnenda að sjá konurnar sem eru til staðar og skapa þeim tækifæri. Það er kominn tími til að láta hendur standa fram úr ermum og láta verkin tala. Jafnrétti er ekki einkamál kvenna,“ segir Rakel í fréttatilkynningu.
Hér má nálgast mælaborð með tölfræðiupplýsingum um jafnrétti, bæði í fyrirtækjarekstri og í opinberum störfum.