Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum þess efnis að það ætti að banna ananas sem álegg á pítsu. Guðni sagði í skólaheimsókn í febrúar í fyrra að hann væri ekki hrifinn af álegginu og að helst vildi hann banna ananas á pítsur.
Ummælin frægu lét Guðni falla á Akureyri þegar hann svaraði spurningu nemanda um pítsur.
„Þarna held ég að áhrif embættisins hafi stigið mér til höfuðs,“ sagði forsetinn í viðtali við útvarpsþátt CBC í Kanada, As It Happens. „Ég gekk skrefi of langt.“
Hawaiian-pítsan svokallaða er geysivinsæl í Kanada en á henni er meðal annars ananas.
Sam Panopoulos, sem fyrstur manna setti ananas á pítsu, sagðist einfaldlega ekki skilja þessa andstöðu forsetans við ananas, enda gæfi hann pítsunni einstaklinga frískandi bragð.
„Þó að ég sé alls ekki hrifinn af því að fá ananas á pítsu skiptir frelsi einstaklingsins meira máli en mitt álit á þeim,“ sagði Guðni. „Ég mæli með sjávarréttapítsu.“