Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, gerði grín að heimilisofbeldi sem Ragnheiður Runólfsdóttir, afrekskona í sundi, segist hafa orðið fyrir af hendi Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins.
Er þetta meðal þess sem kemur fram í upptökum frá Klaustri Bar 20. nóvember. „Já sunddrottninguna já, voruði að lemja hana?“ heyrist Gunnar Bragi segja í upptöku í frétt Stundarinnar áður en hann svo skellir upp úr.
Ragnheiður lýsti reynslu sinni af heimilisofbeldi, sem hún segist hafa upplifað af hendi Magnúsar Þórs, í viðtali við Akureyri vikublað í fyrra.
„Sá sem lemur Röggu Run, hann á ekki séns á Vesturlandi,“ segir Bergþór Ólason. „Ég veit það. Veistu, ég er sammála þér. Ég skil ekkert í ykkur,“ svarar Anna Kolbrún Árnadóttir.
„Ha? Sá sem lemur Röggu Run? Hver er það?“ spyr Gunnar Bragi áður en hann bætir við: „Já sunddrottninguna já, voruði að lemja hana? Hahahahah!“
„Maggi gerði það sko,“ segir Bergþór.
Forseti Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon, greindi frá því við upphaf þingfundar á Alþingi í dag að mál þingmanna, sem viðhöfðu gróft orðlag um samþingmenn sína og aðra á bar í miðborg Reykjavík á dögunum, væri komið í viðeigandi farveg hjá forsætisnefnd þingsins sem mögulegt siðabrotamál.