Kona ársins, maður ársins og nagli eru meðal þess sem notendur Twitter hafa kallað Báru Halldórsdóttur eftir að hún steig fram sem Marvin, uppljóstrarinn á Klaustri.
Bára, sem er fötluð, hinsegin kona, sat á Klaustri bar 20. nóvember síðastliðinn og átti sér einskis ills von þegar hún varð vör við þingmenn á næsta borði sem hreyttu út úr sér fúkyrðum um konur, fatlaða og hinsegin fólk.
Hún ákvað að taka samræðurnar upp á símann sinn og nokkrum dögum seinna ákvað hún að deila því sem hún hafði orðið vitni að með þjóðinni. Hana hefði aldrei grunað hvílík atburðarás færi af stað.
Netverjar hafa nú tekið sig saman og þakkað Báru fyrir undir myllumerkinu #takkbára.
#takkbára fyrir það sem þú hefur gert. Að sitja undir þessu og hlusta á sorann sem fór fram á Klaustur er þrekvirki.Þú ert kona ársins 💗 @AndwerMarvin
— Sigrún Ósk (@crazy_bird_lady) 7 December 2018
Hún er rosaleg í þessu viðtali. Algjör nagli. #takkBára
— Drífa Pálín Geirs (@DrifaP) 7 December 2018
Maður ársins er hinssegin kona og öryrki #takkbára https://t.co/D4v13sIest
— Anna Bentína (@annabentina) 7 December 2018
#takkbára Þú átt alla mína virðingu. #klausturgate
— Kristin Sigurgeirs (@KSigurgeirs) 7 December 2018