„Á næstu árum mun fólki á eftirlaunum fjölga meira en fólki á vinnumarkaði. Kostnaður ríkissjóðs vegna aldurstengdra sjúkdóma og þjónustu við aldraða mun að öllum líkindum aukast. Þeir sem hætta að vinna geta því ekki búist við að hið opinbera bæti miklu við eftirlaunin.“
Þetta segir Gunnar Baldvinsson, sem ritað hefur bók um eftirlaunasparnað, í Morgunblaðinu í dag.
Að hans sögn munu um 30 þúsund Íslendingar fara á eftirlaun á næstu 10 árum og að mörgu er að hyggja fyrir þann hóp.