Breskir fjölmiðlar fjalla um bílsslysið sem varð við brúna við Núpsvötn í morgun. Ferðamennirnir þrír sem létust í slysinu voru með breskt ríkisfang.
The Guardian, The Mirror, BBC, The Standard, Sky News og fleiri fréttaveitur hafa sagt frá slysinu sem varð um klukkan hálf tíu í morgun þegar bifreið fór í gegnum vegrið á brúnni og féll um sex metra niður.
Meðal þeirra látnu er eitt barn og fjórir eru alvarlega slasaðir. Fram hefur komið í samtali við lögreglu að einstaklingarnir hafi verið með breskt ríkisfang. Breska sendiráðið segir í samtali mbl.is að ríkisfang fólksins hafi ekki verið staðfest að svo stöddu.