Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri og utanríkisráðherra, segir tillögu borgarfulltrúanna Vigdísar Hauksdóttur og Kolbrúnar Baldursdóttur, um að vísa skýrslu innri endurskoðunar um um framkvæmdir við Nauthólsveg 100 til héraðssaksóknara, vera fráleita.
Frá þessu greinir hún í færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hún segir jafnframt að ekkert í skýrslunni gefi tilefni til þess að vísa skýrslunni til héraðssaksóknara. „Tillagan er til þess eins sett fram að ýta undir hugmyndir um að tilteknir einstaklingar hafi gerst sekir um refsivert athæfi,“ skrifar Ingibjörg Sólrún og bætir við: „Svona getur nú pólitíkin verið ljót og svona er hægt að eyðileggja nauðsynlega og málefnalega umræðu um erfið mál.“
Vigdís og Kolbrún tilkynntu á borgarráðsfundi á fimmtudag að þær myndu sameiginlega leggja fram tillögu til borgarstjórnar um að skýrslu innri endurskoðunar verði vísað til frekari rannsóknar hjá héraðssaksóknara.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs og oddviti Viðreisnar, sagði í samtali við mbl.is að ekkert í skýrslunni bendi til þess nokkur glæpsamlegur ásetningur hafi verið til staðar og að minnihlutinn sé að nota braggamálið í pólitísku leikriti.