Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson, óháðir þingmenn sem vikið var úr þingflokki Flokks fólksins í kjölfar Klausturmálsins, gagnrýndu forseta Alþingis við upphaf þingfundar í dag. Allir forystumenn þingflokka á Alþingi taka þátt í almennum stjórnmálaumræðum en óháðu þingmennirnir tveir fá ekki að taka þátt í umræðunum.
„Þetta er óboðlegt,“ sagði Karl Gauti í ræðustól. Hann sagði þá Ólaf hafa tilkynnt þingforseta í desemberbyrjun að þeir hygðust starfa utan flokka og hafa með sér samstarf, og óskuðu þeir eftir því að tillit yrði tekið til samstarfs þeirra.
Ólafur Ísleifsson steig í ræðustól á eftir Karli Gauta og lýsti yfir furðu sinni á að þeim hefði ekki verið úthlutað svo mikið sem einni mínútu í umræðum dagsins nema í andsvörum. „Af hálfu skrifstofu Alþingis var okkur boðið að halda fimm mínútna ræðu en svo bregður við skömmu áður en umræður hefjast og að fulltrúi okkar yrði ekki á mælendaskrá,“ sagði Ólafur.
Steingrímur J. Sigfússon þingforseti sagði að honum hefðu engar óskir borist um þátttöku þingmannanna óháðu áður en gengið var frá samkomulagi vegna umræðna dagsins.