Tveir flutningabílar hafa farið út af á Holtavörðuheiðinni sl. sólarhring og valt annar bíllinn.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi fór flutningabíll út af veginum á Holtavörðuheiði skömmu eftir hádegi í dag og er nú unnið að því að ná bílnum upp á veg á ný. Hinn bíllinn fór hins vegar út af veginum í gærkvöldi. Í hvorugu tilfellinu urðu slys á fólki.
Mikil hálka er nú á heiðinni og eru ökumenn því hvattir til að fara varlega.