Utanríkisráðherra hefur ákveðið að verja þrjátíu milljónum króna til aðstoðar við flóttafólk frá Venesúela, með stuðningi við starfsemi Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Er þetta til viðbótar tuttugu milljóna króna framlagi sem var ráðstafað til hjálpar flóttafólki frá Venesúela í samstarfi við SOS-Barnaþorp í lok janúar.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra greindi Juan Guaidó, forseta þjóðþings Venesúela, frá þessu í dag. Ræddi Guðlaugur Þór við Guaidó og greindi honum frá stuðningi ríkisstjórnar Íslands við hann sem forseta til bráðabirgða og framlagi Íslands til mannúðaraðstoðar.
„Við ræddum almennt um stöðuna í Venesúela og mikilvægi þess að alþjóðasamfélagið beiti sér áfram fyrir frjálsum og friðsamlegum kosningum í Venesúela. Það var gott að geta greint frá fjárhagsstuðningi okkar við flóttafólk frá Venesúela, enda þörfin brýn,“ er haft eftir Guðlaugi Þór í frétt á vef Stjórnarráðsins.
Einnig ræddu þeir Guðlaugur Þór og Gauidó áframhaldandi friðsæl mótmæli í Venesúela og aðgerðir stjórnar Nicolasar Maduro, sem meðal annars hefur komið í veg fyrir að mannúðaraðstoð berist þeim sem á þurfa að halda.
Áður hafði Guðlaugur Þór rætt við Oswaldo Perez og Maríu Carolinu Osorio frá Venesúela sem bæði eru búsett er hér á landi. Þau höfðu sína sögu að segja um hvernig ástandið hefur hríðversnað í Venesúela. Hitabeltissjúkdómar sem ekki hafa sést í landinu láta nú á sér kræla og vannæring og lyfjaskortur veldur aukinni tíðni dauðsfalla bæði meðal barna og fullorðinna, að því er segir í fréttinni.