Landsréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms yfir karlmanni á fimmtugsaldri, Gunnari Rúnari Gunnarssyni, sem dæmdi hann í sex mánaða fangelsi í maí í fyrra fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum.
Honum var gert að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattskýrslum tveggja einkahlutafélaga, annars vegar sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður og hins vegar sem daglegur stjórnandi.
Auk sex mánaða fangelsisdóms dæmdi héraðsdómur hann til greiðslu 13,6 milljóna í sekt til ríkissjóðs, allan sakarkostnað og málsvarnarlaun verjanda, samtals 2,2 milljónir. Í dómi héraðsdóms í fyrra var Gunnar Rúnar ekki talinn hafa fært nein sannfærandi rök fyrir sýknukröfu.
Í dómi Landsréttar sem staðfesti dóm héraðsdóms var Gunnari einnig gert að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins, tæpar 900 þúsund krónur, og málsvarnarlaun verjanda sína, 843 þúsund krónur.
Gunnar er annar tveggja manna sem nefndir voru „útfararstjórar“ í sjónvarpsþættinum Brestum, en þeir höfðu tekið við stjórn fjölda fyrirtækja áður en þau fóru í þrot til að koma í veg fyrir að nöfn fyrri eigenda væru tengd við þrotið.
Í niðurstöðu héraðsdóms var sérstaklega tekið fram að ákærði hafi 14 sinnum áður verið sakfelldur fyrir refsiverðan verknað og nær sakaferillinn aftur til ársins 1995. Eru þar um að ræða brot sem varða meðal annars fjársvik og kynferðisbrot gegn börnum og andlega veikri konu.