Þorbjörg nýr formaður Samtakanna ’78

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, nýr formaður Samtakanna '78, ásamt fráfarandi formanni, Maríu …
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, nýr formaður Samtakanna '78, ásamt fráfarandi formanni, Maríu Helgu Guðmundsdóttur. Ljósmynd/Viima Lampinen

Þorbjörg Þorvaldsdóttir var í dag kjörin formaður Samtakanna ’78, á aðalfundi samtakanna. Þorbjörg tekur við formannsembættinu af Maríu Helgu Guðmundsdóttur sem hefur verið formaður Samtakanna ’78 frá 2016.

Í fréttatilkynningu frá samtökunum segir að Þorbjörg hafi verið ein í kjöri til formanns og því sjálfkjörin, en samtökin kusu sér einnig nýja stjórn og nýtt trúnaðarráð á fundinum í dag. Þá samþykktu félagsmenn umhverfis- og jafnréttisstefnu og sjálfboðaliðastefnu félagsins og þá var aðgerðaáætlun gegn ofbeldi kynnt, en nánar verður unnið að henni á næstu vikum.

Marion Lerner, Rósanna Andrésdóttir og Sigurður Júlíus Guðmundsson voru kjörin í stjórn samtakanna, en fyrir voru í stjórninni þeir Unnsteinn Jóhannsson og Rúnar Þórir Ingólfsson sem voru kjörnir til tveggja ára á síðasta aðalfundi.

Þorbjörg lauk BA-prófi í almennum málvísindum frá Háskóla Íslands árið 2015 og MA-prófi í málvísindum frá Leiden University í Hollandi. Hún stundar nú doktorsnám í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands. Meðfram námi hefur hún starfað við aðhlynningu aldraðra, sem barþjónn, móttökustarfsmaður á hóteli og flugfreyja.

Þorbjörg hefur setið í stjórnum nemendafélaga (Skólafélags Menntaskólans í Reykjavík og Mímis, félags stúdenta í íslenskum fræðum) og í framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna. Þorbjörg er kvænt Silju Ýr S. Leifsdóttur lífeindafræðingi og eiga þær eina dóttur, Valbjörgu Maríu tveggja ára. Þorbjörg er tvíkynhneigð.

Almenningsálitið með hinsegin fólki

„Samtökin ‘78 eru ein allra mikilvægustu félagasamtök á Íslandi. Á fjörutíu ára sögu félagsins hafa lífsgæði og réttindi hinsegin fólks tekið algjörum stakkaskiptum. Þökk sé þrotlausri baráttu búum við nú við lífsgæði sem voru nánast óhugsandi þegar Samtökin ‘78 voru stofnuð. Lagaleg staða okkar er ekki fullkomin - en mun betri - og það sem hefur kannski hvað mest áhrif á okkar daglega líf - almenningsálitið - er með okkur í liði. Það er ekki eftirsóknarvert að vera fordómafullur gagnvart hinsegin fólki í íslensku samfélagi nútímans.

Þetta þýðir ekki að Ísland sé einhver hinsegin útópía; að við höfum náð fullkominni hinsegin fullkomnun og lifum í besta heimi allra heima. Því ofbeldi og mismunun gegn hinsegin fólki á Íslandi er staðreynd. En stundum er okkar helsta vandamál það að fólk áttar sig ekki á því hvenær það er fordómafullt og hvenær ekki,“ sagði Þorbjörg eftir að hún tók við embætti formanns samtakanna í dag, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert