Hægt að vera ósammála án óviðeigandi ummæla

Katrín Jakobsdóttir opnaði fundinn í morgun.
Katrín Jakobsdóttir opnaði fundinn í morgun. mbl.is/Árni Sæberg

Sá tími er liðinn að hægt sé að horfa í kring­um fing­ur sér varðandi mál sem tengja má við #MeT­oo-bylt­ing­una og við þurf­um að geta tekið á slík­um óþægi­leg­um mál­um. Þetta sagði Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra á fundi í morg­un.

Yf­ir­skrift fund­ar­ins var „Stjórn­mál­in og #MeT­oo“ og var þetta í annað sinn sem all­ir flokk­ar á Alþingi taka hönd­um sam­an og ræða MeT­oo á morg­un­verðar­fundi.

For­sæt­is­ráðherra sagði að það ein­fald­asta sem stjórn­mála­fólk gæti gert væri að fara með mál tengd #MeT­oo í flokk­spóli­tísk­an far­veg og sagði hún að það hefði gerst í lönd­un­um í kring­um okk­ur.

Það mætti ekki ger­ast en fólk væri mætt á fund dags­ins til að taka hönd­um sam­an og til að ná sam­eig­in­legu mark­miði.

„Þetta á ekki að snú­ast um að kon­ur segi ekki frá því þær séu að vinna gegn eig­in stjórn­mála­flokki með því,“ sagði Katrín.

Hún sagði að all­ir flokk­ar þyrftu að skoða sín mál og ef­laust færu þeir mis­mun­andi leiðir. „Ég held að ekk­ert okk­ar hér inni viti ná­kvæm­lega hver besta leiðin er,“ sagði Katrín og ít­rekaði að það þyrfti að taka á óþægi­leg­um mál­um.

Stjórn­mála­fólk þyrfti að vera meðvitað um sér­stöðu stjórn­mál­anna, þar sem sam­keppn­in er gríðarleg. Það þýði að færri kom­ast að en vilja. „Sam­keppni get­ur leitt vil valda­bar­áttu,“ sagði Katrín og bætti við að það gæti aukið lík­ur á of­beldi og einelti.

„Við get­um verið ósam­mála og rök­rætt mál­in án þess að grípa til óviðeig­andi um­mæla,“ sagði Katrín.

Við þurf­um að bregðast við #Met­oo-frá­sögn­um úr þess­ari jafn­rétt­ispara­dís,“ sagði Katrín. Að henn­ar mati höfðu sög­ur kvenna af er­lend­um upp­runa mest áhrif, ekki bara vegna þess að sög­urn­ar voru slá­andi held­ur einnig vegna þess að oft var um að ræða ein­angraðar kon­ur í ókunn­ugu landi.

„Við vit­um þó að ekki hafa all­ar sög­ur hljómað, sagði Katrín og nefndi fatlaðar kon­ur í því sam­hengi.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert
Loka