Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands segir Framsýn stéttarfélag hafa borið SGS þungum sökum í kjölfar ákvörðunar um að afturkalla samningsumboð sitt frá SGS. Hafnar samningsnefndin þessum ásökunum og segir miður að vera borin þungum sökum af félögum sínum.
Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar, sagði í samtali við mbl.is, eftir að tilkynnt var um afturköllunina, að Framsýn hefði alfarið hafnað vinnutímabreytingum sem Samtök atvinnulífsins lögðu fram í viðræðum við verkalýðsforystuna. Bætti hann við að slíkar hugmyndir væru kjaraskerðing. „Því miður er það þannig að innan hreyfingarinnar hafa verið einstaklingar sem hafa viljað skoða þetta, en maður áttar sig ekki á því. Þetta er bara bullandi kjaraskerðing fyrir fólk að skera niður yfirvinnutíma og lengja dagvinnutíma,“ sagði Aðalsteinn.
Í yfirlýsingu SGS í dag segir að hvert félag hafi forræði á sínum málum, en að það sé „miður að í tengslum við þessa samþykkt þurfi að bera félaga sína þungum sökum. Samninganefnd Starfgreinasambandsins mun aldrei taka þátt í því að semja um að rýra kjör okkar fólks, hvort sem það l[ý]tur að vinnutíma, álagsgreið[slum] eða [öðrum] þátt[um]. Í viðræðum við Samtök atvinnulífsins hefur þessi afstaða komið fram með mjög sterkum og afdráttarlausum hætti og samninganefndarmönnum á að vera það algerlega ljóst. Það má minna á að Starfsgreinasambandið sleit viðræðum við SA vegna þessara þátta. Samninganefnd Starfsgreinasambandsins mun ekki standa í skeytasendingum við félaga sína í fjölmiðlum. Verkefni okkar er að ná samningum um bætt kjör okkar fólks, við einbeittum okkur að því í samhljómi við félaga okkar í Eflingu, Verkalýðsfélagi Akraness og Grindavíkur.“
Undir yfirlýsinguna skrifar Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri SGS.