Sólveig Anna Jónsdóttir hefur hlotið heimild yfirgnæfandi meirihluta samninganefndar Eflingar til þess að ganga frá kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins á þeim forsendum sem nú eru til staðar.
Formaður Eflingar staðfestir þetta í samtali við fréttastofu RÚV og mun nú vera á leið frá höfuðstöðvum Eflingar, þar sem samninganefnd Eflingar hafði fundað síðan kl. 20 í kvöld, að húsakynnum ríkissáttasemjara.
Blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins, þar sem kynna átti lífskjarasamning aðila vinnumarkaðarins og aðgerðir stjórnvalda í tengslum við hann, var frestað nú síðdegis að beiðni aðila vinnumarkaðarins, sem funda enn í húsnæði ríkissáttasemjara og gera ráð fyrir að svo verði gert fram á nótt.
Elísabet Ólafsdóttir, skrifstofustjóri hjá ríkissáttasemjara, segir í samtali við mbl.is það vissulega góðar fréttir að Sólveig Anna hafi fengið umboðið en að engu að síður haldi vinna áfram og enn sé að ýmsu að huga. Ekki liggur fyrir hversu lengi verður fundað.