Þrátt fyrir að náðst hafi samkomulag í viðræðum á milli Samtaka atvinnulífsins og félaga verslunarmanna og félaga Starfsgreinasambandsins eru bílstjórar Strætó á tíu leiðum í verkfalli milli klukkan 7 og 9 líkt og í gær. Ástæðan fyrir því að verkfalli bílstjóranna var ekki aflýst sú að búið var að boða fund þeirra í morgun.
Um er að ræða verkföll á leiðum 12, 14, 15, 16, 17, 21, 24, 28, 35 og 36.