„Hver er þá sekur um popúlisma í þessari umræðu?“ spyr Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, á Facebook-síðu sinni í dag vegna umræðunnar um þriðja orkupakka Evrópusambandsins.
„Fólk hefur áhyggjur af þriðja orkupakkanum - spyr áleitinna spurninga um fullveldisafsal og sjálfræði þjóðarinnar yfir orkuauðlindum sínum. Viðbrögðin? Fúkyrði og dylgjur um hugarfar þeirra sem efast: Efasemdarmönnum (sem eru af ýmsum toga og koma úr ýmsum áttum) er öllum skipað í einn hóp sem sakaður er um þjóðernisofstopa og popúlisma,“ segir Ólína enn fremur um málið.
Spyr Ólína hvort ekki sé ástæða til þess að ræða málið málefnalega. „Málið snýst ekkert um ættjarðarást. Það snýst um hagsmuni Íslendinga. Hvernig væri nú að endurvekja kröfuna um auðlindaákvæði í nýrri stjórnarskrá til þess að verja þjóðina fyrir eignamyndun og ásælni í orkuauðlindir hennar, og gera kröfu um að frá því verði gengið áður en lengra er haldið með orkupakkana? Hvar er sú umræða?“ Og áfram segir hún:
„Ég heyri hana ekki hjá málsvörum samfélagslegrar ábyrgðar og alþjóðasamstarfs. Ég les bara blaðagreinar þar sem efasemdarfólkinu eru gerðar upp skoðanir, efast um hvatir þess og tilgang af því að í hópnum eru Miðflokksmenn og Flokks fólksins menn. En í hópnum eru fleiri. Fjöldi fólks úr öllum stjórnmálaflokkum hefur efasemdir og rökstuddar spurningar sem ekki hafa fengist svör við.“