Fá viðbótarstyrk vegna aðstæðna

Vegna lokunar Landeyjarhafnar hefur stjórn og framkvæmdastjóri Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf., óskað eftir viðbótarstyrkveitingu frá Vegagerðinni vegna aðstæðna.

Fram kemur í tilkynningu, að fjórum aukaferðum verði viðkomið í siglingaráætlun til Þorlákshafnar á vegum félagsins. Tvær ferðir fyrir páska og tvær ferðir eftir páska.

Þá segir, að Vegagerðin hafi fallist á að styrkja þrjár ferðir. „Fyrir það ber að þakka. Þrátt fyrir það mun Herjólfur sigla fjórar aukaferðir um páskana,“ segir í tilkynningunni. 

Ennfremur segir, að ekki sé búið að tímasetja ferðirnar. Þær munu birtast við fyrsta tækifæri á heimasíðu félagsins, á Facebook-síðunni, og á bókunarsíðu félagsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert