Ragnheiður Erla Björnsdóttir, tónskáld og rithöfundur, er „óþekkta konan“ sem hitti Báru Halldórsdóttur á barnum Klaustri 20. nóvember síðastliðinn. Þetta staðfestir Bára við mbl.is.
Í Stundinni og á Fréttablaðið kemur fram að í samtali við Ragnheiði að hún hafi verið með litla skopparakringlu meðferðis og annað hvort ljóðabók eða tölvu meðferðis þetta umrædda kvöld. Ragnheiður Erla sá Báru sitja á barnum bæði á leið sinni á æfingu í Rauða skáldahúsinu og á leið heim. Í seinna skiptið ákvað hún að kíkja á Báru en staldraði stutt við því hún hafi verið upptekin. Þær áttu í stuttum orðaskiptum og föðmuðust.
Í samtali við mbl.is segist Bára sjálf ekki muna hvað Ragnheiður Erla hafi haft nákvæmlega meðferðis enda ekki að leggja það á minnið í þá stuttu stund sem þær hittust.
Ekki náðist í Ragnheiði Erlu við vinnslu fréttarinnar er hún er stödd á Sri Lanka þar sem hún vinnur sem sjálfboðaliði með börnum.
Stjórn Persónuverndar hefur hafnað kröfum lögmanns þingmanna Miðflokksins um frekari gagnaöflun í Klaustursmálinu.