Á fundi formanna stjórnmálaflokkanna sem eiga sæti á Alþingi var ákveðið fyrr í dag að afgreiða tvö frumvörp um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands til samráðs við almenning á samráðsgátt stjórnvalda.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.
Annars vegar er um að ræða frumvarp um umhverfisvernd og hins vegar frumvarp um auðlindir í náttúru Íslands. Vinna við frumvörpin er komin á þann stað að rétt þykir að leita álits og athugasemda frá almenningi um efni þeirra, að því er segir í tilkynningunni.
Vakin er athygli á því að samráðsgátt stjórnvalda er einungis eitt af þeim verkfærum sem nýtt verða til samráðs við almenning í stjórnarskrárvinnunni en að auki mun fara fram skoðanakönnun og rökræðukönnun síðar á þessu ári.
Frumvörpin verða til umsagnar í samráðsgáttinni til 30. júní.