Afar kalt en þurrt á Ströndum

Það er kalt en þurrt á Ströndum þessi dægrin.
Það er kalt en þurrt á Ströndum þessi dægrin. mbl.is/Jón G. Guðjónsson

Afar kalt er á Ströndum að sögn Jóns G. Guðjónssonar, veðurathugunarmanns í Árneshreppi. Þegar sauðburður hófst gekk á með snjóéljum og er enn kalt í veðri þrátt fyrir að það sé þurrt.

Sauðburður hófst almennt í Árneshreppi um fimmta maí en svona fyrir alvöru um tíunda maí. Þegar sauðburður hófst var austlæg eða norðaustlæg vindátt með frekar svölu veðri og jafnvel með snjóéljum. Veður fór síðan hlýnandi aftur þann tólfta með austlægum vindáttum en hægviðri, en þokuloft og súld með köflum, en annars þurrt fram til sautjánda. Þann átjánda gekk í kuldatíð á ný með norðlægum vindáttum með súld og þokulofti í um fjóra daga, annars bara þurrviðri en smá snjóél voru þann 28. Hitastigið hefur verið þetta 0 til 5 stig fram undir þetta, segir í frétt Jóns sem er búsettur í Litlu-Árvík á Ströndum. 

Sauðburður hófst 5. maí í Árneshreppi.
Sauðburður hófst 5. maí í Árneshreppi. mbl.is/Jón G. Guðjónsson

„Þótt veðurfræðingar séu alltaf að tala um kulda á Austfjörðum er kuldatíðin ekkert minni hér á Ströndum þótt úrkomuminna hafi verið hér. Sauðfé var sett út nokkuð snemma þrátt fyrir kuldann því úrkomulítið var, en mest þurrakuldi og að mestu hægviðrasamt. Nú eru aðeins fjórir bæir hér í Árneshreppi sem eru með sauðfé,“ segir enn fremur í frétt Jóns. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert