Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók sjö manns í gær í tengslum við rannsókn lögreglunnar á skipulagðri brotastarfsemi. Vísir greindi fyrst frá.
Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem gefin var út síðdegis segi að fjórir af þeim sjö sem handteknir voru hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 21. júní á grundvelli rannsóknarhagsmunar.
Rannsókn lögreglu snýr meðal annars að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti. Húsleit var gerð á níu stöðum í aðgerðum lögreglu var því um mjög viðamiklar aðgerðir að ræða.
Rannsókn málsins er á frumstigi og lögreglan getur ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.
Fréttin hefur verið uppfærð.