Hiti fór yfir 20 stig víða á landinu í dag, þar með talið á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og er það í fyrsta sinn á þessu ári, að sögn veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Mestur mældist hitinn á Geldinganesi þar sem hann náði tæpum 22 stigum.
„Hitinn fór hæst á stórhöfuðborgarsvæðinu, á Geldinganesi þar sem hann fór í tæp 22 stig, og einnig á Reykjavíkurflugvelli. Á veðurstöðinni hjá okkur fór hann einnig yfir 20 stig,“ segir Daníel Þorláksson veðurfræðingur.
Á morgun er von á svipuðu veðri og var í dag, nema rignir suðaustanlands. „Hiti fer örugglega yfir 20 stig á Vesturlandi á morgun, jafnvel í höfuðborginni en það er þó ekki jafn líklegt og í dag,“ segir Daníel. Á sunnudag verður áfram hæg, austlæg átt og stöku skúrir sunnan til en þurrt annars staðar.
„Svo á þriðjudag koma skil yfir með rigningu um allt land, það hefur verið í kortunum í dag og það verður fróðlegt að sjá hvort það haldist. Það væri nú fínt að vökva gróðurinn aðeins.“