Til handalögmála kom milli tveggja manna á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar nú skömmu eftir hádegi og töfðu slagsmál mannanna umferð austur Miklubraut talsvert að sögn blaðamanns mbl.is sem átti þar leið um.
Að sögn blaðamanns mbl.is höfðu mennirnir stöðvað bifreiðar sínar og kýldu hvor annan ítrekað. Komust bifreiðar að einhverju leyti fram hjá mönnunum, en þeir ollu þó talsverðri truflun á umferðinni.
Lögreglu hefur ekki borist tilkynning vegna málsins.