Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir breiðan pólitískan vilja til að takmarka jarðakaup auðmanna hér á landi. Það sé skýrt að ekki eigi að líta á land eins og hverja aðra vöru eða þjónustu.
Rætt var við Katrínu í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.
Félagið Sólstafir, í augu breska auðkýfingsins Jim Ratcliffe, festi nýverið kaup á Jörðinni Brúarlandi 2 í Þistilfirði. Félagið hefur undanfarin ár keypt jarðir í Vopnafirði og Þistilfirði.
Auk þess hefur Fljótabakki ehf., sem er íslenskt dótturfélag bandaríska ferðaþjónustufyrirtækisins Eleven Experience, keypt jörðina Atlastaði í Svarfaðardal.
„Ég tel að það sé mikill og breiður pólitískur vilji til að setja strangari ramma um þessi mál hér á landi eins og við sjáum svo víða í nágrannalöndum okkar,“ sagði Katrín.
Ríkisstjórnin boðaði aðgerðir til að takmarka jarðakaup auðmanna hér á landi. Starfshópur hefur unnið að málinu og von er á því að frumvarpi verði lagt fyrir Alþingi í vetur.