Sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Kristins Sigurjónssonar, fyrrverandi lektors við Háskólann í Reykjavík, gegn skólanum verður áfrýjað til Landsréttar.
Þetta fullyrðir Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Kristins. „Það er ljóst að þetta verður aldrei endanleg niðurstaða í málinu,“ segir hann. „Það verður aldrei unað við þetta.“
Kristinn stefndi skólanum vegna uppsagnar hans í október í fyrra en ástæða hennar voru ummæli sem hann hafði uppi á netinu. Hann krafði skólann um 66 mánaða laun, eða tæplega 57 milljónir króna, sem hann taldi sig eiga rétt á þar sem hann kenndi áður hjá Tækniskólanum í Reykjavík og var þar opinber starfsmaður.
Jón Steinar bætir við að athyglisvert sé hvað sumar dómsúrlausnir komi honum á óvart, þótt hann „telji lögfræðina í því standa til annarra hluta“.
„Í sjálfu sér er þetta orðið þannig að maður getur átt von á hverju sem er, sama hvað manni finnst um hinar lagalegu röksemdir. Þetta er bara reynslan eins og hún er orðin, og því miður liggur mér við að segja.“