Fimm pálmatré hafa verið gróðursett í Laugardalnum af garðyrkjufræðingum borgarinnar. Markmiðið er að kanna hvernig þessar plöntur dafna í íslenskri veðráttu, að því er fram kemur í frétt á vef Reykjavíkurborgar.
Pálmatrén voru sett niður í góðu skjóli við Sunnuveg og verður vel fylgst með því hvernig þau pluma sig næsta vetur, en þau eru af sérstöku yrki frá Himalayafjöllum. Guðlaug Guðjónsdóttir og Hannes Þór Hafsteinsson garðyrkjufræðingar áttu frumkvæði að þessari tilraun og hafa umsjón með nýju plöntunum.
Í tilkynningu borgarinnar er ekki minnst á möguleg tengsl tilraunarinnar við áform meirihlutans um að setja upp listaverk í formi tveggja pálmatrjáa í glerhjúpum í Vogabyggð. Áætlaður kostnaður við verkið er 140 milljónir króna.
Í frétt borgarinnar segir að tilgangurinn sé að auka við flóruna og „prófa sig áfram með aukinni fjölbreytni í gróðri í borgarlandinu“. Þá segir að gaman verði að fylgjast með því hvernig pálmatrén þrífist í reykvískum vetri en búið verður vel um þau þegar kólna fer.