Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands, hefur lýst sig reiðubúna til að funda með Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna að lokinni Svíþjóðarferð sinni, geti varaforsetinn framlengt Íslandsdvöl sína.
Lára Björg Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar staðfesti þetta í samtali við mbl.is.
Jeffrey Ross Gunther, nýskipaður sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, kom til fundar við forsætisráðherra í stjórnarráðinu í dag. Á fundinum var meðal annars ræddur sá möguleiki að Pence myndi framlengja Íslandsheimsókn sína þannig að forsætisráðherrann og varaforsetinn ættu möguleika á að hittast.
Líst Katrín sig reiðubúna að funda með Pence ef þetta gangi eftir.
Ferðaáætlun varaforsetans gerir ráð fyrir að hann komi hingað til lands 4. september og fundi þá með Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra og halda síðan til Bretlands daginn eftir þar sem hann mun funda með þarlendum ráðamönnum.
Katrín mun, líkt og áður hefur komið fram ávarpa þing Norræna verkalýðssambandsins (NFS) sem fer fram í Malmö 3. – 5. september undir yfirskriftinni „Byggjum brýr“. Hefur sú ákvörðun hennar vakið athygli utan landsteinanna og sætt nokkurri gagnrýni alþingismanna, sem hafa sagt forsætisráðherra eiga að nýta tækifærið og ræða við Pence um brýn málefni.
Sagði Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, í samtali við Morgunblaðið í dag það „óvenjulegt“ að forsætisráðherra landsins skuli ekki taka á móti varaforsetanum.