„Við hlökkum til að fara í þessa umræðu og vonumst að sjálfsögðu til að menn sjái að sér og láti orkuauðlindir landsins og landið njóta vafans,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins, í samtali við mbl.is um þingstubbinn svokallaða sem hefst í vikunni.
Þingið mun koma saman í þrjá daga til þess að ræða frumvörp og þingsályktunartillögur í tengslum við þriðja orkupakkann og breytingu á raforkulögum. Að umræðum loknum fer fram atkvæðagreiðsla áður en þingi verður frestað að nýju þangað til nýtt löggjafarþing kemur saman 10. september.
Gunnar Bragi var nýkominn af þingflokksfundi, þegar mbl.is náði tali af honum, þar sem þingmenn flokksins undirbjuggu sig fyrir komandi þingfundi. Spurður hvort að afstaða þingmanna flokksins til þriðja orkupakkans væri sú sama og áður svaraði hann:
„Að sjálfsögðu. Hún hefur bara styrkst ef eitthvað er. Það er engin spurning um það.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, skaut föstum skotum að þingmönnum Miðflokksins í samtali við mbl.is fyrr í dag. Kallaði hún þá „algjörlega óútreiknanlega“ og útilokaði ekki að þeir myndu virða samkomulag um þinghaldið að vettugi.
„Það kæmi mér ekki á óvart ef þeir myndu reyna að draga kanínu úr sínum margslungna hatti [...] Miðflokkurinn hefur áður virt samkomulög að vettugi en í þetta skiptið var það skrifað niður á blað þannig að ég held það verði erfitt fyrir þá að bakka út úr því en alls ekki ómögulegt miðað við það sem ég þekki af þeim félögum. Það er ekkert alltaf hægt að treysta á að þeir geri það sem þeir segist ætla að gera,“ sagði Þórhildur meðal annars.
Gunnar Bragi lét sér fátt um finnast um þessa orðræðu Þórhildar og vísaði henni til föðurhúsanna. „Ég held það sé rétt að hún skýri þetta nánar því ég veit ekki betur en það sé einmitt hún og restin af stjórnarandstöðunni sem ekki hafa staðið við samkomulag um skiptingu í nefndir gagnvart okkur,“ sagði Gunnar og bætti við:
„Við virðum öll okkar samkomulög að sjálfsögðu, nú sem áður.“
Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, býst ekki við öðru en að þinghaldið fari fram með þeim hætti sem samið var um í júní. Hann segir einhug ríkja meðal þingmanna flokksins að styðja innleiðingu þriðja orkupakkans.
Er það meirihlutaákvörðun eða eru allir einstaka þingmenn á þeirri skoðun?
„Það verður hver að svara fyrir sig en ég á ekki von á öðru en að málið muni hljóta stuðnings allra eða svo til allra þingmanna flokksins,“ svaraði Birgir og bætti við:
„Okkur hefur verið ljóst lengi að málið væri umdeilt meðal flokksmanna Sjálfstæðisflokksins og það hefur komið fram á fjölmörgum fundum þingmanna með flokksmönnum. En nú er það þannig að þingflokkurinn hefur unnið í langan tíma að þessu máli, farið yfir það fram og til baka, og það hefur ekkert komið fram sem þingflokkurinn telur gefa tilefni til að breyta um afstöðu.“
Hann á ekki von á neinum uppákomum á þingfundum í vikunni. „En maður veit aldrei hvað gerist í pólitík,“ segir hann að lokum.