Pence hefur yfirgefið borgina

Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, fyrir utan Höfða eftir fund sinn …
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, fyrir utan Höfða eftir fund sinn með íslenskum leiðtogum. mbl.is/​Hari

Heimsókn Mikes Pence, varaforseta Bandaríkjanna, í Höfða er lokið og hefur hann yfirgefið höfuðborgarsvæðið. Tímabundnum umferðartöfum í umdæminu af þeirri ástæðu á því að vera lokið og umferðin að komast í eðlilegt horf.

Frá þessu greinir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í tilkynningu.

Lögreglan segir ennfremur að umferðin í dag hafi mestmegnis gengið ágætlega að því undanskildu að harður árekstur varð á gatnamótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar um eittleytið.

„Þar rákust saman lögreglubifreið og fólksbifreið. Tveir voru fluttir á slysadeild, en meiðsli þeirra eru talin minni háttar. Um svipað leyti voru tveir menn handteknir skammt frá Höfða fyrir brot á lögreglusamþykkt. Þeir voru færðir á lögreglustöð til skýrslutöku. Bann var sett við drónaflugi yfir Höfða og nágrenni, en því var aflétt kl. 17,“ segir í tilkynningunni. Lögreglan þakkar vegfarendum þolinmæðina og tillitssemina.

mbl.is/​Hari
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert