Það er ekki séríslenskt fyrirbæri að áfengi kosti margfalt meira á fínustu hótelunum en út úr búð segir í færslu á facebooksíðu Félags atvinnurekenda, sem segir hæsta áfengisverð í Evrópu hins vegar vera hér á landi í boði stjórnvalda. Vísar félagið þar til færslu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra sem furðaði sig á háu verði á bjór á börum bæjarins.
Bjarni keypti sér bjór um helgina á hótelbar sem var 370% yfir smásöluverði ÁTVR og tjáði sig um málið á Facebook, en færsla hans kom í framhaldi af umfjöllun Félags atvinnurekenda, frá því í gær, þar sem fjallað er um skattlagningu á áfengi hér á landi.
„Fjármálaráðherra skautar hér lipurlega fram hjá þeirri staðreynd að verð áfengis í vínbúðum er miklu hærra hér en í öllum öðrum Evrópulöndum - með þeirri einu undantekningu að bjór er dýrari í Noregi en hér,“ segir Félag atvinnurekenda í færslu sinni.
Hæsta áfengisverð í Evrópu sé í boði stjórnvalda, sem leggi á hæstu áfengisskatta í Evrópu. „Fjármálaráðherra boðar í fjárlagafrumvarpi næsta árs enn frekari hækkun á áfengisgjaldi og jafnframt á álagningu ÁTVR, sem þýðir að enn bætum við Evrópumetið okkar í áfengisverði. Það er sá veruleiki sem allir kaupendur áfengra drykkja - líka þeir sem myndu aldrei kaupa sér bjór á barnum á Nordica - standa frammi fyrir,“ segir í færslunni.