Neytendastofa hefur tekið úr sölu um 100 tegundir af áfyllingum þar sem nikótíni hefur verið bætt við vökva á sölustað. Þegar vökvi hefur verið blandaður af söluaðila kemur ekki fram hve mikið nikótín er í vökvanum. Erfitt er því að komast að hvaða innihaldsefni eru í slíkri áfyllingu, við hvaða aðstæður blöndunin fer fram, hvernig mælingar fara fram eða hver eiturhrif eru.
Neytendastofa vekur athygli á að einkenni eitrunar af völdum nikótíns eru til dæmis uppköst, hraður hjartsláttur, öndunarerfiðleikar og aukin munnvatnsframleiðsla. Áfyllingar fyrir rafrettur mega að hámarki innihalda 20 mg/ml af nikótínvökva.
Umræða um rafrettur og mögulega skaðsemi þeirra hefur aukist upp á síðkastið. Rúmlega 500 manns hafa veikst eftir notkun á rafrettum í Bandaríkjunum, samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisyfirvöldum og bann við notkun bragðefna í rafrettum tók gildi í borginni Los Angeles nýverið. Þá ætla indversk stjórnvöld að banna bragðbætta vökva.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði í samtali í Morgunblaði í vikunni að nýlegar fréttir um lungnasjúkdómafaraldur í Bandaríkjunum, sem virðist tengjast rafrettunotkun, séu mikið áhyggjuefni.
Ábendingum vegna rafrettna og áfyllinga sem grunur er um að séu ekki í lagi má koma til Neytendastofu í gegnum mínar síður á heimasíðu stofnunarinnar.