Ómari Ragnarssyni voru í gær veitt verðlaunin Græni lundinn á RIFF, Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík.
Þetta er í fyrsta sinn sem Græni lundinn er afhentur og var það Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra sem afhenti Ómari verðlaunin.
„RIFF heiðrar Ómar fyrir ævistarf sitt við kvikmyndun á náttúru landsins með því að veita honum þessi heiðursverðlaun,“ segir í kynningu RIFF.