Sundmannakláði í Landmannalaugum

Frá Landmannalaugum. Úr safni.
Frá Landmannalaugum. Úr safni. mbl.is/Hag

Umhverfisstofnun hefur fengið tilkynningar um að notendur náttúrulaugarinnar í Landmannalaugum hafi fengið útbrot vegna sundmannakláða.

Fram kemur á vef stofnunarinnar, að um sé að ræða sundlirfur fuglablóðagða sem valdi útbrotum þegar farið er í vatn þar sem lirfurnar séu til staðar.

„Kláðabólur myndast þegar ofnæmiskerfi líkamans hefur tekist að stöðva lirfurnar. Sýni menn ekki ofnæmisviðbrögð hefur lirfunni tekist að komast óáreittri inn í líkamann, en þar drepst hún fljótlega. Blóðögðurnar finnast í andfuglum eins og stokkönd og duggönd sem eiga til að dvelja á svæðinu í Landmannalaugum,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir, að Umhverfisstofnun hafi haft samráð við sóttvarnarlækni og byggist niðurstaða á greiningum frá Tilraunastöðinni á Keldum. Stofnunin, í samstarfi við fagaðila, vinni að því að koma í veg fyrir að sundmannakláði berist áfram í náttúrulaugina í Landmannalaugum.

„Ekki hefur tekist að koma í veg fyrir það á þessu ári og þurfa því baðgestir að hafa það í huga að enn er möguleiki á að smitast af sundmannakláða.“

Hér má finna nánari upplýsingar um sundmannakláða: http://keldur.is/um_fuglablodogdur_og_sundmannaklada

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert