BBC sýnir bráðnum íslenskra jökla

Frá Svínafellsjökli. Jöklar heimsins eru að meðaltali flestir að hopa …
Frá Svínafellsjökli. Jöklar heimsins eru að meðaltali flestir að hopa vegna hlýnunar loftslags. mbl.is/Friðrik Tryggvason

„Við sáum mik­inn mun á skömm­um tíma,“ sagði Kier­an Baxter frá Há­skól­an­um í Dundee í Skotlandi. Hóp­ur frá Skotlandi og Íslandi bar sam­an mynd­ir af jökl­um hér á landi frá ní­unda ára­tugn­um og mynd­um tekn­um ný­lega.

Mörg þúsund­ir mynd­ir voru tekn­ar og born­ar sam­an. Á þeim má sjá hversu mikið jökl­arn­ir hafa hopað und­an­far­in ár en í um­fjöll­un á vef BBC kem­ur fram að ís­lensku jökl­arn­ir séu að bráðna.

Ein­blínt var á svæðið sunn­an við Vatna­jök­ul.

Fjallað er um Ok­jök­ul en minn­ing­ar­at­höfn var um hann um miðjan ág­úst. Ok hætti að vera jök­ull sam­kvæmt skil­grein­ing­um vís­inda­manna árið 2014.

Einnig er bent á skýrslu Veður­stof­unn­ar um Lofts­lags­breyt­ing­ar og áhrif þeirra hér á landi frá því í fyrra. Þar kem­ur meðal ann­ars fram að flat­ar­mál ís­lenskra jökla hafi dreg­ist sam­an um  500 fer­kíló­metra frá síðustu alda­mót­um, eða um 0,35% á ári og gangi sviðsmynd­ir um lofts­lags­breyt­ing­ar eft­ir muni þeir halda áfram að minnka.

Um­fjöll­un BBC og mynd­irn­ar má sjá hér.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert