„Stundum skilja leiðir og það er lítið við því að gera. Það kom okkur á óvart hér í upphafi þingflokksfundar þegar hann sagði okkur frá þessu, það verður að segjast eins og er,“ segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, um úrsögn Andrésar Inga Jónssonar úr þingflokknum.
Tilkynnt var í upphafi þingfundar nú kl. 15 að Andrés Ingi hefði sagt sig úr þingflokki Vinstri grænna og hygðist starfa utan þingflokka.
Í tilkynningu þess vegna segist Andrés Ingi telja fullreynt að hann geti sinnt þingstörfum eftir samvisku sinni og sannfæringu í ríkisstjórnarsamstarfinu. Bjarkey segir Andrés Inga ekki hafa tiltekið þessar ástæður á þingflokksfundinum. Hún hafi lesið um þær í fjölmiðlum og á Facebook.
Aðspurð hvort hún telji að Samherjamálið hafi verið kornið sem fyllti mælinn hjá þingmanninum segist Bjarkey ekki geta ályktað um það af skrifum Andrésar.
Þá segist Bjarkey algerlega ósammála Andrési um að Vinstri græn nái ekki að fylgja sínum hugsjónum í ríkisstjórnarsamstarfinu með Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum.
„Að sjálfsögðu þökkum við fyrir samstarfið. Það er engin ástæða til annars.“