Margar verslanir í miðborg Reykjavíkur hafa þegar lokað vegna veðurs, eins og Kristinn Magnússon, ljósmyndari mbl.is og Morgunblaðsins, komst að á göngu sinni um miðborgina á fjóða tímanum.
Nokkur fjöldi fólks var þó á ferli og lét veðrið lítið á sig fá, eins og sjá má í meðfylgjandi myndasyrpu frá Kristni.