Telur RÚV hafa uppfyllt lögbundið hlutverk

Matið er framkvæmt til þess að meta hvernig Ríkisútvarpið uppfyllir …
Matið er framkvæmt til þess að meta hvernig Ríkisútvarpið uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess í lögum og til þess hvort þjónusta Ríkisútvarpsins hafi „þróast í takt við tæknibreytingar og þarfir samtímans.“ mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að Ríkisútvarpið hafi uppfyllt lögbundið almannaþjónustuhlutverk sitt árið 2017, en tæplega 70 blaðsíðna skýrsla þess efnis var birt á vef fjölmiðlanefndar í dag. Þetta er í fjórða sinn sem fjölmiðlanefnd skilar slíku mati.

Matið er framkvæmt til þess að meta hvernig Ríkisútvarpið uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess í lögum og til þess hvort þjónusta Ríkisútvarpsins hafi „þróast í takt við tæknibreytingar og þarfir samtímans.“

Annar tilgangur með matinu er svo að uppfylla kröfur Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, um ríkisstyrki til útvarpsþjónustu, en mat sem þetta þarf að fara fram til þess að unnt sé að veita Ríkisútvarpinu undanþágu frá almennum ríkisstyrkjareglum.-

Fram kemur í skýrslunni að Ríkisútvarpið hafi lokið öllum 24 tímasettum aðgerðum samkvæmt samningi mennta- og menningarmálaráðherra og Ríkisútvarpsins um fjölmiðlun í almannaþágu 2016-2019.

Fjölmiðlanefnd gerir helst þær athugasemdir í skýrslu sinni að bregðast þurfi við óvissu um framtíðarhorfur rekstrar Ríkisútvarpsins, meðal annars vegna skuldbindinga félagsins við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Fjölmiðlanefnd segist taka undir sjónarmið RÚV „um að trygg og fyrirsjáanleg opinber fjármögnun sé grunnforsenda þess að almannafjölmiðill geti rækt lýðræðis-, menningar- og samfélagshlutverk sitt í samræmi við ákvæði laga.“

Langur framboðsfrestur geri RÚV erfitt fyrir

Þá segir fjölmiðlanefnd einnig að reglur um framboðsfresti fyrir kosningar geri Ríkisútvarpinu erfitt fyrir, þar sem frestir renna út afar skömmu fyrir kosningar, eða 15 dögum fyrir alþingiskosningar, þremur vikum fyrir sveitarstjórnarkosningar og fimm vikum fyrir forsetakosningar.

Miðflokkurinn kvartaði árið 2017 við stjórn Ríkisútvarpsins yfir því að búið hefði verið að taka upp þætti þar sem framboðum var leyft að kynna stefnumál sín áður en Miðflokkurinn var búinn að setja saman framboðslista og málefnaskrá og áður en framboðsfrestur til kosninganna rann út.

„Umfjöllun Ríkisútvarpsins um framboð og frambjóðendur þarf að hefjast mun fyrr til að unnt sé að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í lögum um Ríkisútvarpið og samningi mennta- og menningarmálaráðherra og Ríkisútvarpsins um fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Þetta þýðir að umfjöllun Ríkisútvarpsins þarf að hefjast áður en fyrir liggur hvaða flokkar og einstaklingar ná að safna tilskildum fjölda undirskrifta til að framboð þeirra teljist gild. Eins og fjölmiðlanefnd hefur áður bent á er brýnt að samræma reglur um framboðsfresti fyrir kosningar og þær kröfur sem gerðar eru til kosningaumfjöllunar Ríkisútvarpsins í lögum um Ríkisútvarpið og þjónustusamningi mennta- og menningarmálaráðherra og Ríkisútvarpsins. Slíkt fyrirkomulag væri hvoru tveggja í samræmi við fordæmi í nágrannalöndum Íslands og í samræmi við réttmætar væntingar almennings og frambjóðenda til þess að leikreglur séu skýrar,“ segir í athugasemd fjölmiðlanefndar um þetta efni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert