Fyrir skömmu leiddi Íslendingurinn Fiann Paul fyrsta róðurinn frá syðsta hluta S-Ameríku um Drake-sundið að suðurskautinu. Róið var á 90 mínútna vöktum samfleytt í tólf daga. Aðstæðurnar og svefnleysið hafa sterk áhrif á skilningarvitin og á köflum byrjaði raunveruleikinn að renna saman við drauma Fianns.
Í myndskeiðinu segir hann frá þessum sögulega róðri og þar má sjá mikið af myndefni sem tekið var upp í leiðangrinum.
Fiann hefur búið hér á landi í rúman áratug og á þeim tíma hefur hann lokið við svokallaða alslemmu úthafsævintýra (e. Ocean Explorers Grand Slam), í því felst að hafa róið yfir Atlantshaf, Indlandshaf, Kyrrahaf, Norður-Íshaf og Suður-Íshaf. Þetta gerði hann fyrstur manna og er metið skráð hjá heimsmetabók Guinness. Nú eru 33 afrek hans í bókinni hjá Guinness, sem er það mesta sem nokkur einstaklingur hefur fengið skráð í keppnisíþróttum.
Þá hefur Fiann tekið fram úr Reinhold Messner í metbókunum með því að fá skráð sitt fjórtanda afrek, sem enginn hefur gert áður (e. World's first) hjá Guinness.
Alls voru sex ræðarar í hópnum en Fiann var skipstjórinn um borð. Lagt var af stað frá Hornhöfða, syðsta punkti S-Ameríku, klukkan 12 hinn 13. desember síðastliðinn og komið til Suðurskautslandsins klukkan 13.45 á jóladag. Auk Fianns voru þeir Colin O'Brady, Cameron Bellamy, Andrew Towne, Jamie Douglas-Hamilto og John Petersen í leiðangrinum.
Fiann er í doktorsnámi í sálfræði við Carl Jung Institute í Sviss þar sem hann hefur kannað hvað fær fólk til að fara að líkamlegum þolmörkum sínum í ofurþolraunum og þetta ræddi hann við mbl.is fyrir skömmu.