Spyr hvort Samfylking og Viðreisn leggi sig niður

Þorsteinn sagði það hrun sem margir höfðu spáð ekki hafa …
Þorsteinn sagði það hrun sem margir höfðu spáð ekki hafa átt sér stað. mb.is/Kristinn Magnússon

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, segir fróðlegt að fylgjast með því hvort þeir tveir flokkar á Íslandi sem hafi haft þá stefnu að Ísland gangi til liðs við Evrópusambandið muni leggja sjálfa sig niður í kjölfar útgöngu Breta úr sambandinu.

Hann gerði útgönguna og áhrif hennar að umtalsefni í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag, en þeir tveir flokkar sem hann vísaði til eru væntanlega Samfylkingin og Viðreisn.

Hann sagði útgönguna „áfangasigur almennings yfir embættismannavaldi“ og í kjölfarið væri rökrétt skref fyrir Breta að leita norður á bóginn eftir samvinnu og samstarfi. Þar riði á að Íslendingar væru klárir í verkefnið. Nú stæði til að mynda yfir gerð tvíhliða samninga við Breta um viðskipti og fleira.

Enn þá rafmagn á Bretlandi og lestir ganga

Þá benti hann á að útgangan myndi hafa pólitísk áhrif víða. „Á Íslandi eru t.d. tveir stjórnmálaflokkar sem hafa lengi haft eina stefnu, segulstefnu 130, Reykjavík/Brussel, og nú allt í einu eru þessir ágætu stjórnmálamenn á svipinn eins og hernámsandstæðingar árið 2006 þegar herinn fór úr landi. Tilgangurinn er farinn. Hvað gerum við nú? Það verður mjög fróðlegt að fylgjast með því hvort þessir tveir flokkar sem höfðu þá einu stefnu að Ísland gengi til liðs við þetta laskaða bandalag leggi sjálfa sig niður fljótlega í framhaldi af þessum gleðilegu tíðindum.“

Þorsteinn sagði að nóg væri að bíta og brenna í Bretlandi. Þar væri enn þá rafmagn um allt land og lestirnar gengju að venju. Það hafi því ekki orðið það hrun sem margir hafi spáð að myndi eiga sér stað við útgönguna.

„Nú ærast einhverjir í salnum. En í undirbúningi að þessari gerð barst hér um þessa sali tal um það að þeir sem urðu til þess að vinna þjóðaratkvæðagreiðsluna um útgöngu hefðu verið mest ómenntaðir búrar og einangrunarsinnar en góða gáfaða fólkið hefði setið heima og straujað trefilinn sinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert