Dregið hefur úr skjálftavirkni í grennd við Grindavík undanfarna daga. Enn mælast þó smáskjálftar á svæðinu. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram með virkni á svæðinu. Frá 21. janúar hafa yfir 1.500 skjálftar verið staðsettir á svæðinu og eru þeir flestir staðsettir í SV/NA-stefnu um 2 km NA af Grindavík.
Vísbendingar eru um breytt mynstur í jarðskorpuhreyfingum, en enn má sjá merki um áframhaldandi landris. Í heildina hefur land risið yfir 5 cm frá 20. janúar sl. Gervitunglamyndir sýna sömu þróun. Með landrisi má búast við áframhaldandi jarðskjálftavirkni.
Líklegasta skýring þessarar virkni er kvikuinnskot á 3-5 km dýpi rétt vestan við Þorbjörn. Líklegast er að virknin ljúki án eldsumbrota. Næsti fundur vísindaráðs almannavarna verður haldinn fimmtudaginn 13. febrúar þar sem farið verður yfir stöðuna við Grindavík.