Lilja hefði viljað gagnsæi í ráðningarferli RÚV

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. mbl.is/Hari

Lilja Al­freðsdótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­málaráðherra, seg­ir að ráðning í stöðu út­varps­stjóra liggi á borði stjórn­ar RÚV, ekki á borði menn­ing­ar- og mennta­málaráðherra. Hún hefði þó kosið fullt gagn­sæi í ráðning­ar­ferl­inu öllu.

Morg­un­blaðið greindi frá því fyrr í dag að Krist­ínu Þor­steins­dótt­ur, ein­um um­sækj­enda um starf út­varps­stjóra, hefði borist synj­un um rök­stuðning vegna ráðning­ar­inn­ar.

Synj­un­in var reist á þeim rök­um að stjórn RÚV væri ekki lög­skylt að veita ein­stök­um um­sækj­end­um sér­stak­an rök­stuðning þar sem RÚV sé op­in­bert hluta­fé­lag.

Hefði kosið fullt gagn­sæi

Krist­ín óskaði upp­lýs­inga um m.a. hvað hefði ráðið vali á út­varps­stjóra og hvað Stefán Ei­ríks­son, nýr út­varps­stjóri, hefði haft fram yfir hana. Krist­ín óskaði þess einnig að fá gögn um um­sókn­ar­ferlið. Því var einnig neitað. Til stuðnings neit­un­ar­inn­ar vísaði RÚV í úr­sk­urði úr­sk­urðar­nefnd­ar upp­lýs­inga­mála og sagði að upp­lýs­inga­lög veittu ekki rétt til gagn­anna.

„Ráðning í stöðu út­varps­stjóra ligg­ur al­farið á borði stjórn­ar RÚV sem er kos­in af Alþingi Íslend­inga. Það hef­ur þegar komið fram í þessu máli að ég hefði kosið fullt gagn­sæi í ráðning­ar­ferl­inu öllu og það á líka við um ákvörðun stjórn­ar að rök­styðja ekki,“ seg­ir Lilja í skrif­legu svari til mbl.is.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert