Tvö ný tilfelli af kórónuveirunni sem veldur COVID-19-sjúkdómi voru staðfest á veirufræðideild Landspítala í dag. Þetta staðfestir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir við mbl.is.
Hann segir að sýnin hafi verið tekin í gær og niðurstaða fékkst skömmu fyrir hádegi.
Um er að ræða fólk sem kom með flugi frá Veróna á Ítalíu á laugardag og hafði dvalið á skíðasvæðum í norðurhluta Ítalíu.
Þórólfur segir að eitthvað á fjórða hundrað einstaklinga séu í sóttkví hér á landi.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, embætti landlæknis, Rauði krossinn og Landspítali bjóða til upplýsingafundar fyrir blaðamenn í dag. Fundurinn er haldinn í húsakynnum almannavarnadeildar að Skógarhlíð 14 og hefst klukkan 14:00.