Boðað hefur verið til blaðamannafundar í húsakynnum almannavarna í dag kl. 15 vegna útbreiðslu kórónuveirunnar sem veldur öndunarfærasjúkdómnum COVID-19. 37 hafa greinst með sýkingu af völdum veirunnar hér á landi til þessa. Fundur átti að hefjast klukkan 14 en hefur verið frestað um klukkustund.