Enginn viðbúnaður vegna flugs frá München

Víðir Reynisson, hjá almannavörnum, og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Víðir Reynisson, hjá almannavörnum, og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Enginn sérstakur viðbúnaður er hjá almannavörnum vegna farþega sem koma til landsins frá München í Þýskalandi. Þetta segir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, aðspurður. Reglulegt flug er á milli Keflavíkur og München og er von á að hópur fólks sem var á skíðum á Ítalíu og Austurríki komi til landsins á mánudag með vél þaðan. Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli í eftirmiðdaginn er 80 manns komu til landsins frá Veróna á Ítalíu.

„Við höfum þó beint þeim tilmælum til fólks að fara í sóttkví,“ segir Víðir og vísar þar til fólks sem hefur dvalið á Ítalíu og í austurríska þorpinu Ischgl. Ekki hefur þótt ástæða til að skilgreina stærra svæði í Austurríki sem áhættusvæði vegna veirunnar og eru þau sem hafa dvalið á öðrum svæðum því ekki send í sóttkví.

Víðir segir þó að öllum sé ráðlagt að fylgjast grannt með eigin heilsu og hafa samband í síma 1700 til að panta sýnatöku verði einkenna vart. Fram kom á blaðamannafundi almannavarna í gær að til skoðunar væri að skilgreina öll skíðasvæði í Ölpunum sem áhættusvæði.

50 tilfelli kórónuveirunnar hafa greinst hér á landi. Ársgamalt barn er meðal hinna smituðu, en það er eina barnið sem greinst hefur með veiruna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert