Fimm ný tilfelli af COVID-19-sjúkdómnum voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala nú í kvöld. Heildarfjöldi tilfella er því 81.
Frá þessu greinir almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Í upphafi dags var vitað til 65 staðfestra smita og hefur þeim því fjölgað um sextán í dag.
Snemma í kvöld kom fram að alls hefðu um 710 sýni verið tekin í heild, þar af 93 í dag.
Í sóttkví væru 598 manns og 70 til viðbótar í einangrun.