Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir aðgerðirnar sem Seðlabanka Íslands kynnti í morgun sannfærandi og fagnar því sérstaklega að sveiflujöfnunaraukinn hafi verið afnuminn.
Með aðgerðunum er skapað svigrúm til nýrra útlána sem nema að öðru óbreyttu allt að 350 milljörðum króna.
„Ég tel að þetta hafi verið hárrétt skref í rétta átt hjá Seðlabankanum,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem fagnar einnig vaxtalækkunum bankans um hálft prósentustig.
„Það er einkar mikilvægt núna að þeir aðilar sem að þessu koma, þ.e. ríkisstjórnin, Seðlabankinn, Alþingi, fjármálakerfið og aðilar á vinnumarkaði, rói allir í sömu átt. Væntanlega verða á næstu dögum stigin enn stærri skref eins og Seðlabankinn og ríkisstjórnin hafa bæði gefið til kynna.“