„Norræn samstaða er ómetanleg“

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, átti í dag símafund með utanríkisráðherrum hinna Norðurlandaþjóðanna til að ræða aðgerðir vegna kórónuveirunnar.

Ráðherrarnir lýstu sérstakri ánægju með samkomulag sem hefur tekist milli ríkjanna um enn frekara samstarf um borgaraþjónustu til að koma þeim Norðurlandabúum til aðstoðar sem eiga á hættu að verða strandaglópar, ekki síst í fjarlægari ríkjum, að því er kemur fram í tilkynningu.

Á fundinum lýsti utanríkisráðherra, sem og Ine Marie Eriksen Søreide utanríkisráðherra Noregs, jafnframt ánægju sinni með þann stuðning sem ESB-ríkin þrjú, Danmörk, Finnland og Svíþjóð, veittu í þeirri viðleitni að fá fellt úr gildi bann sem ESB hafði sett á útflutning á lækningavörum til EFTA-ríkjanna.

„Norræn samstaða er ómetanleg, ekki síst við þessar fordæmalausu aðstæður og það er gott að finna að við erum öll sammála um það,“ segir Guðlaugur Þór í tilkynningunni. „Við erum sammála um að deila upplýsingum sem mest, enda viljum við gjarnan læra hvert af öðru og geta gripið til þeirra ráðstafana sem gefast best hverju sinni. Samstarf norrænu utanríkisráðuneytanna snertir ekki síst borgaraþjónustu og við erum sammála um að ef við vinnum náið saman getum við tryggt að sem flestir Norðurlandabúar komist leiðar sinnar.“

Guðlaugur bætir við að nú þegar séu flugsamgöngur afar takmarkaðar. Þeir Íslendingar sem hyggja á heimkomu þurfi að snúa heim strax, skrá sig í grunn borgaraþjónustunnar og hafa beint samband ef þeir verða strandaglópar. Um mánaðamótin gætu allar flugleiðir hafa lokast.

Verkefni samráðshóps um borgaraþjónustu sem Norðurlöndin hafa nú sett á laggirnar verða m.a. að efla samstarf um skráningu og upplýsingasöfnun vegna ríkisborgara Norðurlandanna fimm, sem staddir eru erlendis og komnir eru í vandræði þar sem æ fleiri ríki hafa fyrirskipað útgöngu- og ferðabann og vegna þess að verulega hefur dregið úr framboði á farþegaflugi. Þá er vilji til að deila sértækum úrræðum sem eitt eða fleiri norrænu landanna grípur til, í samstarfi við flugfélögin, í því skyni að aðstoða borgara sína erlendis, samkvæmt tilkynningunni.

Borgaraþjónustan svarað yfir 2.000 erindum

Frá og með 14.-19. mars sinntu tugir starfsmanna utanríkisþjónustunnar í borgaraþjónustunni um tvö þúsund erindum í síma, með tölvupósti og í skilaboðum á Facebook. Þá voru sendir út reglulegir póstar til þeirra sem skráðir eru í gagnagrunn borgaraþjónustunnar sem fór í loftið 25. febrúar vegna COVID-19.

Í dag höfðu 9.274 skráð sig í grunninn og af þeim er áætlað að a.m.k. þrjú þúsund manns séu þegar komnir til baka til Íslands.

Hægt er að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins með skilaboðum á Facebook, með tölvupósti á hjalp@utn.is eða í neyðarsíma borgaraþjónustu +354 545-0-112 sem er opinn allan sólahringinn.

Hér er hægt að skrá sig í grunn borgaraþjónustunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert